Málsnúmer 1501153
Bæjarstjórn Grindavíkur - 454. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Páll Jóhann og Ásrún
Tekið fyrir eftir grenndarkynningu breyting á deiliskipulagi hesthúsabyggðar. Breytingarnar eru m.a. að byggingarreitur fyrir reiðhöll stækkar um 12m til vesturs og texti um holræsa- og lagnakerfi breytist á þann hátt að í stað þess að byggð á deiliskipulagssvæðinu tengist holræsakerfi bæjarins verður hver og einn að vera með rotþró innan lóðar. Ein athugasemd barst í kynningarferlinu. Í athugasemdinni er gerð athugasemd við lóðaskipan við Hópsheiði 10 og vísað til munnlegs samkomulags við Hópsheiði 8 og 12 og óþinglýstu lóðarblaði dagsett 10.7.2007. Þessu fyrirkomulagi var hins vegar mótmælt við fyrri grenndarkynningu og vísað til þinglýsts lóðarblaðs. Skipulagsnefnd bendir á að þar að auki er stuðst við þinglýst lóðarblöð lóðanna við gerð skipulagsins og hefðum og venjum í skiptingu raðhúsalóða.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúi svari athugasemdinni með þessum rökum og feli skipulagsfulltrúa skipulagið til fullnaðarafgreiðslu og senda skipulagið til skipulagsstofnunar og auglýsa í b-deild stjórnartíðinda.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.