Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1501126

Bæjarráð Grindavíkur - 1379. fundur - undefined


Arnar Freyr Jónsson hefur óskað eftir viðræðum við Grindavíkurbæ um möguleg kaup á gömlum vatnstanki við Austurveg. Markmið Arnars er að breyta vatnstanknum í Micro-hús, sem yrði hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar í skipulagsnefnd á fundi sínum þann 19. janúar síðastliðinn.

Arnar hefur kynnt verkefnið fyrir nefndinni og lagt fram teikningar. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að stofnuð verði lóð undir mannvirkið áður en gengið verði til samninga um sölu.

Bæjarráð samþykkir að stofnuð verði lóð undir mannvirkið og hafnar verði viðræður við umsækjandann um kaup á eigninni á grundvelli framlagðrar tillögu.