Málsnúmer 1501057
Bæjarráð Grindavíkur - 1371. fundur - 2.3.2015 00:00:00
Framhald frá fundi 1367.
Minnisblað sviðsstjóra félagsþjónustu-og fræðslusviðs og leikskólafulltrúa varðandi gjaldskrá dagforeldraþjónustu fyrir eldri en 18 mánaða lagt fram að nýju með breytingatillögu fræðslunefndar.
Bæjarráð samþykkir að gera breytingu á gjaldskrá dagforeldraþjónustu, þannig að foreldrar barna í dagforeldraþjónustu greiði sama gjald og foreldrar barna á leikskólum frá og með 18 mánaða aldri, að því gefnu að börnin séu á biðlista á leikskóla. Bæjarstjóra falið að útfæra tillöguna nánar með það fyrir augum að gildistaka verði 1. mars næstkomandi.