Málsnúmer 1501021
Bæjarstjórn Grindavíkur - 454. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði fyrirspurnum.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur, bæjarstjóri, Páll Jóhann og Marta
Tekið fyrir eftir auglýsingu deiliskipulag miðbæjar, Hafnargata Ránargata. Auglýstur athugasemdafrestur var frá og með 20. maí sl. til 15. júlí sl. Ein athugasemd barst frá Vísi hf. þar sem óskað er eftir fjölgun bílastæða á svæðinu og bent er á svæði við Seljabótina og Álfhól. Tekið hefur verið tillit til athugasemdarinnar og auka bílastæði sett við Seljabótina og við Álfhól. Umsagnir án athugasemda bárust frá Umhverfisstofnun og Orkustofnun en umsagnir með athugasemdum bárust frá siglingarsviði Vegagerðarinnar og Minjastofnun. Búið er að setja inn minjar á deiliskipulagsuppdrátt sbr. athugasemd Minjastofnunar og tillit verður tekið til athugasemdar Vegagerðarinnar við hönnun vega sbr. athugasemd Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið skipulagið til fullnaðarafgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulagsnefndar.