Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1501002

Frístunda- og menningarnefnd - 39. fundur - 2.4.2015 00:00:00


Í kjölfar um umræðna á síðasta fundi leggur sviðsstjóri til eftirfarandi breytingar á reglugerð kjörsins:
Inn í 6. grein bætist við eftirfarandi:
”Eftir að deildir/íþróttafélög hafa sent inn greinargerðir með tilnefningum sínum, skal sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs boða kynningarfund með valnefnd, áður en hún kýs. Þar geta fulltrúa þeirra deilda/íþróttafélaga sem tilnefna,komið og kynnt nánar afrek þeirra sem eru tilnefndir í kjörinu. Sviðsstjóri skal boða fulltrúa deilda/íþróttafélaga á fundinn.“

Í lok 9. greinar bætist við eftirfarandi málsgrein:
”Verðlaunin skulu veitt þeim íþróttamanni sem er áhugasamur, með góða ástundun, sýnir góða hegðun innan vallar sem utan, góður félagi og telst vera góð fyrirmynd annarra unglinga.
Lágmarksaldur hvatningarverðlauna er 7. bekkur, hámarksaldur er 10. bekkur.“

Tillögurnar eru samþykktar.