Málsnúmer 1409113
Frístunda- og menningarnefnd - 35. fundur - 10.1.2014 00:00:00
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2015 lög fram.
Undir þessum lið kom Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja. Forstöðumaður bókasafns er í fríi en sviðsstjóri lagði fram áætlun fyrir bókasafnið. Lagðar voru fram tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun annars vegar fyrir bókasafnið og hins vegar fyrir íþróttamannvirki og tillögur að breytingu á gjaldskrám fyrir árið 2015.
Rekstur íþróttamannvirkja: Forstöðumaður leggur til hækkun á gjaldskrám sem nemur u.þ.b. 2,5%. Að bætt verði við tveimur stöðugildum frá áramótum þegar áfangi 2 við Íþróttamiðstöð Grindavíkur verður tekin í gagnið. Jafnframt að opnunartími verði lengdur til að auka þjónustuna.
Rekstur bókasafns: Lagt er til að gjaldskrá verði óbreytt, að aldur þeirra sem fá fríkort hækki úr 16 í 18 ár og opið verði á laugardögum frá og með 18. október nk. eftir að búið er að opna bókasafnið formlega.
Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs lagði fram fjárhagsáætlun fyrir Félagsmiðstöðina Þrumuna, starfsemi Vinnuskóla Grindavíkur og aðra liði er heyra undir frístunda- og menningarsvið.
Er lýtur að rekstri vinnuskólans er lagt til að laun nemenda hækki og verði sem hér segir:
17 ára: 1.243 kr. með orlofi.
16 ára: 758 kr. með orlofi.
15 ára: 606 kr. með orlofi.
14 ára: 531 kr. með orlofi.
Lögð er til fjölgun á vinnustundum um 5% sem verður gert í samvinnu við Ungmennaráð.
Rekstur leikjanámskeiðs: Lögð er til u.b.b. 2,5% hækkun á gjaldskrá leikjanámskeiða (nema viðbótarstund). Jafnframt er lagt til að aftur verði boðið upp á leiklistarnámskeið sem hluta af frístundaframboði sumarsins 2014 líkt og gert var í sumar og heppnaðist vel.
Verð fyrir 7 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00-16:00 = 10.800 kr.
Verð fyrir 3 klst. pr. dag: Frá kl. 09:00 - 12:00 eða frá kl. 13:00 - 16:00 = 7.000 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 10 daga kl. 08:00-09:00 - 2.000 kr.
Verð fyrir viðbótarstund í 10 daga kl. 16:00-17:00 - 2.000 kr.
Systkinaafsláttur; 2. barn 50%, 3. barn 75%.
Rekstur tjaldsvæðis: Gert er ráð fyrir u.þ.b. 3% hækkun á gistigjaldi en 10% á rafmagni:
Gistinótt pr einstakling 1.243
Gistináttagjald pr. gistieining 107
Fjórða hver nótt frí
Yngri en 14 ára frítt
Rafmagn á sólarhring 1000
Þvottavél 500
Þurrkari 500
Útleiga á þjónustuhúsi
Hálfur dagur 15.000
Heill dagur 25.000