Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1409043

Bæjarstjórn Grindavíkur - 446. fundur - undefined


Til máls tóku: Kristín María, Marta, Guðmundur, Bryndís og Hjálmar
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og svaraði hann fyrirspurnum.

Erindi frá Biokraft ehf. Í erindinu er lýst áætlunum um uppbyggingu vindmyllu á Stað. Mastur vindmyllunnar er 40 m, þvermál blaðahrings er 44 m og mun mannvirkið því ná 62 m hæð. Hluti skipulags- og umhverfisnefndar fór í skoðunarferð í Þykkvabæ þann 15. október sl. og hittu forsvarsmenn Biokraft og skoðuðu samskonar vindmyllur.

Skipulags- og umhverfisnefnd telur mannvirkið ekki falla vel að þeirri náttúru sem er í nágrenni Grindavíkur. Sem stendur er mikil vinnsla á vistvænni orku í sveitarfélaginu í gegnum jarðvarma og ekki fyrirséð orkuþörf sem kalli eftir uppsetningu vindmyllna við strandlengju sveitarfélagsins.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að erindinu verði hafnað.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar og beinir því til nefndarinnar að við endurskoðun aðalskipulags verði metið hvort og þá hvar heimilt verði að reisa vindmyllur innan skipulagsmarka Grindavíkur.