Málsnúmer 1407035
Bæjarstjórn Grindavíkur - 445. fundur - undefined
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti hann málið.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Bryndís, bæjarstjóri, Guðmundur og Marta
Samkvæmt 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins þegar að loknum sveitarstjórnarkosningum. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að hafin verði endurskoðun ákveðinna þátta aðalskipulagsins.
Jafnframt er lögð fram undirrituð yfirlýsing milli Grindavíkurbæjar, HS Orku hf. og Bláa Lónsins hf. um breytingar á iðnaðarsvæðum.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar um að endurskoðun aðalskipulags fari fram og felur nefndinni að hefja vinnuna.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viljayfirlýsinguna.
Undirrituð yfirlýsing lögð fram til staðfestingar. Gögnin koma inn seinnipart á mánudag. Undirritun fer fram á morgun.