Málsnúmer 1406032
Bæjarstjórn Grindavíkur - 447. fundur - undefined
Til máls tóku: Kristín María og Guðmundur
Deiliskipulagið hefur hlotið afgreiðslu skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga nr. 106/2005 um umhverfismat áætlana. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja, Umhverfisstofnun og Minjastofnun Íslands. Aðilar gerðu ekki athugasemd við deiliskipulagið. Minjastofnun benti á að fornminjar væru ekki merktar inn á deiliskipulagsuppdrátt. Í kjölfarið voru fornleifar merktar inn á uppdrátt. Engar fornleifar eru innan byggingarreits lokahúss, en fallin varða er í vegstæðinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki deiliskipulagið, og það verði sent til afgreiðslu Skipulagsstofnunar skv. 42. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulags- og umhverfisnefndar samhljóða.