Málsnúmer 1406017
Bæjarráð Grindavíkur - 1353. fundur - 6.10.2014 00:00:00
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs gerði grein fyrir tillögu fræðslunefndar.
Fræðslunefnd leggur til að skólastjórnendum í leik- og grunnskóla verði veitt heimild til að greiða starfsfólki, sem að útskrifaðist með B.Ed. gráðu í grunn- og/eða leikskólakennarafræðum frá og með árinu 2012, sömu laun og þeim sem eru með sömu gráðu og leyfisbréf að auki, að því tilskildu að undanþága fáist fyrir ráðningu þeirra frá undanþágunefnd. Heimildin gildi næsta skólaár.
Bæjarráð samþykkir tillögu fræðslunefndar hvað varðar grunnskóla, en óskar eftir frekari upplýsingum hvað varðar leikskóla.