Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1405132

Bæjarráð Grindavíkur - 1351. fundur - undefined


Fulltrúar B- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúar B- og S-lista leggja til að afgreiðslu umsóknar um 4 ára leyfi verði frestað fram á haust. Þegar um starfsemi er að ræða sem getur haft lyktarmengun í för veitir HES almennt ársleyfi til reynslu svo hægt sé að tryggja að mengunarvarnarbúnaður virki sem skyldi. Í framhaldinu er síðan hægt að sækja um lengra leyfi. Í ljósi þess að umrædd þurrkun fékk ársleyfi í janúar á þessu ári þykir rétt að gefa lengri reynslutíma á menungarvarnarbúnaðinn áður en 4 ára leyfi er veitt.
Fulltrúar B- og S-lista.

Fulltrúi G-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Uppbygging atvinnulífs er Grindavíkurbæ mikilvæg og við í G-listanum stöndum öll fyrir það að vilja auka fjölbreytni þess og laða til okkar fyrirtæki. Fulltrúar G-listans kynntu sér málið vandlega og heimsóttu viðkomandi fyrirtæki sem hefur verið að þurrka hausa síðan í nóvember. Við ræddum við sérfræðinga um hausaþurrkun hjá Matís, auk þess að ræða við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands. Það er ríkur vilji Staðarþurrkunnar að vera með sitt á hreinu enda hafa þeir fjárfest í dýrum oson búnaði til að koma í veg fyrir ólykt. Starfsleyfið sem þeir nú sækja um til HES er til fjögurra ára. Fulltrúar G-listans vilja veita þeim leyfið og eyða þeirri rekstaróvissu sem fyrirtækið býr nú við svo það geti haldið áfram sinni uppbyggingu.
Fulltrúi G-lista.

Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D- lista tekur undir með fulltrúa G-lista að uppbygging fjölbreytts atvinnulífs skiptir miklu máli fyrir Grindavík. Það er mikilvægt fyrir fyrirtæki sem fara út í mikinn kostnað til að bæta búnað sinn að hafa öruggan rekstrargrundvöll. Óvissa sem þessi getur því tafið úrbætur vegna lyktarmengunar og væri því nær að eyða slíkri rekstraróvissu.
Fulltrúi D-lista.


Veita umsögn um umsóknina?