Málsnúmer 1405010F
Bæjarstjórn Grindavíkur - 442. fundur - undefined
Til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Hilmar, Dagbjartur, Páll Jóhann, bæjarstjóri, Marta og Kristín María
Fundargerðin er lögð fram
Bæjarstjórn tekur undir ályktun hafnarstjórnar sem er svohljóðandi:
Hafnarstjórn fagnar áliti Umhverfis- og Samgöngunefndar um að framlag ríkissins til endurbóta á hafnarmannvirkjum hækki úr 60% í 75%. Hafnarstjórn vill árétta að Miðgarður er kominn 10 ár fram yfir líftíma og vaxandi slysahætta vegna skemmda á stáþili. Miðgarður er 25% af bryggjuplássi hafnarinnar og því verður mikið álag á aðra hafnakanta sem felur í sér verulegt óhagræði fyrir notendur hafnarinnar. Hafnarstjórn beinir því til Samgöngustofu að Miðgarður verði tekinn á 3 ára samgönguáætlun.
Bæjarstjórn vill ennfremur vekja athygli á því að nú þegar eru þungatakmarkanir á Miðgarði.