Málsnúmer 1404029
Bæjarstjórn Grindavíkur - 441. fundur - undefined
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir málinu.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Páll Gísla, Marta og Vilhjálmur
Bókun
Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) óskar eftir umsögn um tillögu að Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Meðal tillagna er að skilgreina vatnsverndarsvæði innan skipulagsmarka Grindavíkurbæjar fyrir mögulegt framtíðarvatnsból fyrir Hafnarfjarðarbæ í Fagradal í landi Krýsuvíkur.
Verði tillagan samþykkt þarf að gera breytingu á Svæðisskipulagi Suðurnesja, Aðalskipulagi Grindavíkurbæjar og í kjölfarið vinna deiliskipulagstillögu áður en vatnstaka getur hafist.
Bæjarstjórn tekur undir með skipulags- og umhverfisnefnd og áréttar óánægju með að ekki hafi verið svarað erindi Grindavíkurbæjar um að fá aðkomu að gerð svæðisskipulagsins þar sem ljóst var frá árinu 2012 að Hafnarfjarðarbær vildi skilgreina vatnstökusvæði og tilheyrandi vatnsverndarsvæði inn í landi Grindavíkur. Bæjarstjórn mótmælir því að í tillögunni sé skilgreint vatnsverndarsvæði innan skipulagsmarka Grindavíkurbæjar án viðeigandi samráðs.
Bæjarstjórn ítrekar beiðni sína um aðkomu að svæðisskipulagsvinnunni og áskilur sér rétt til að sækja allan kostnað vegna vinnslu beiðnarinnar á SSH og eftir atvikum Hafnarfjarðarbæ. Bæjarstjórn beinir því jafnframt til Hafnarfjarðarbæjar að leita sem fyrst heimildar landeiganda í Fagradal fyrir mögulegri vatnstöku, þ.e. Héraðsnefnd Suðurnesja.