Málsnúmer 1404018
Bæjarráð Grindavíkur - 1350. fundur - 5.6.2014 00:00:00
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016, 495. mál.
Minnisblað bæjarstjóra með áherslum Grindavíkurbæjar í samgöngumálum lagt fram.
Grindavíkurbær hefur um árabil lagt megináherslu á að endurgerð þils við Miðgarð í Grindavíkurhöfn verði í forgangi samgönguáætlunar. Það eru því vonbrigði að sú framkvæmd sé ekki á fjögurra ára samgönguáætlun 2013-2016. Framkvæmdin er sambærileg við endurgerð Suðurgarðs Sandgerðishafnar, en fyrsti áfangi þeirrar framkvæmdar er áætlaður 2016. Í Svæðisskipulagi Suðurnesja eru Grindavíkurhöfn og Sandgerðishöfn skilgreindar sem aðalfiskihafnir svæðisins.
Grindavíkurbær leggur áherslu á að endurgerð Miðgarðs verði settur á samgönguáætlun 2013-2016.
Bæjarstjóra er falið að senda inn umsögn um þingsályktunartillöguna, ásamt minnisblaði með áherslum Grindavíkurbæjar í samgöngumálum.
Beiðni um umsögn