Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1403157

Bæjarstjórn Grindavíkur - 440. fundur - 4.10.2014 00:00:00


Til máls tóku: Bryndís. Guðmundur og Páll Jóhann

Lárus Guðmundsson formaður Ungmennaráðs Grindavíkur og Nökkvi Harðarson ungmennaráðsfulltrúi kynntu tillögur ráðsins til bæjarstjórnar.

Forseti opnaði á umræður um tillögur Ungmennaráðs.

Forseti leggur fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkir að í fjárhagsáætlun áranna 2015 og 2016 verði sérmerkt fjármagn sem Ungmennaráð hafi til ráðstöfunar fyrir opin svæði og leiktæki.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkir að hækka framlag í vinnuskólann um 10% á árinu 2014. Samhliða verði samþykktur viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 að fjárhæð 3 milljónir kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé. Ungmennaráði verði falið að vinna útfærslu á nýtingu þess fjár í samstarfi við frístunda- og menningarnefnd.
Bæjarstjórn feli Ungmennaráði að útfæra nánar tillögu sína um frístunda- og menningarapp, þ.e. Grindavíkursmáforrit fyrir unglinga og kostnaðarmeta í samstarfi við starfsmann Ungmennaráðs, þannig að tillagan verði reiðubúin til afgreiðslu fyrir fjárhagsáætlunargerð ársins 2015.

Tillagan er samþykkt samhljóða.


Bókun frístunda- og menningarnefndar: Nefndinni líst vel á tillögur ungmennaráðsins og fagnar flottum og frumlegum hugmyndum.