Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1403139

Bæjarstjórn Grindavíkur - 441. fundur - undefined


Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs gerði grein fyrir málinu.

Aðrir sem til máls tóku: Bryndís og Páll Jóhann.

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir framhaldi á þeim endurbótum á Krýsuvíkurvegi milli Vatnsskarðs og
Seltúns sem hafnar voru 2011. Gert er ráð fyrir að leggja á þessu ári bundið slitlag á tvo kafla með sama hætti og áður.
Verkið fellur að gildandi skipulagsáætlunum og er ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b
Framkvæmdasvæðið er innan Reykjanesfólkvangs og hefur því verið haft samráð við Umhverfisstofnun um tilhögun verksins.
Malarefni verður sótt í námur sem eru í rekstri.
Með vísan til ofangreinds og umsagnar Umhverfisstofnunar dagsetta 8. janúar s.l. óskar Vegagerðin eftir framkvæmdaleyfi Grindavíkurbæjar fyrir þessu verki.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða veitingu framkvæmdaleyfis með fyrirvara um leyfi landeiganda.