Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1403108

Bæjarráð Grindavíkur - 1346. fundur - undefined


Heilsuleikskólinn Krókur og Svandís Anna Sigurðardóttir kynjafræðingur sækja um styrk í þróunarsjóð skólastofnana í Grindavík í verkefnið ,,Snemma beygist krókurinn-jafnrétti til framtíðar".

Markmið verkefnisins er að sinna jafnréttisfræðslu starfsfólks og upplýsa og fræða foreldra og
forráðamenn leikskólabarna. Samin verði jafnréttisáætlun með því markmiði að bæta og efla
jafnréttisstarfið á þann hátt að Heilsuleikskólinn Krókur geti starfað sjálfstætt í átt að auknu jafnrétti.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga um verkefnið og leggja fram tillögu um stuðning við það með vísan nýrrar skólanámskrár leik- og grunnskóla og tillögu að nýrri jafnréttisstefnu Grindavíkurbæjar. Í báðum þeim áætlunum er gert ráð fyrir vinnu að jafnréttismálum á sambærilegan hátt og þessu verkefni.