Málsnúmer 1402108
Bæjarstjórn Grindavíkur - 442. fundur - undefined
Sviðsstjóri stjórnsýslu-og fjármálasviðs gerir grein fyrir breytingum á áætlun í upplýsinga- og skjalamálum. Jafnframt leggur hann til að samþykkt verði tilboð Skipulaga og skjala ehf. í ráðgjöf í skjalavinnslu.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís
Bæjarstjórn samþykkir tilboð Skipulaga og skjala ehf samhljóða.
Sviðsstjóri óskar eftir því að bæjarstjórn samþykki eftirfarandi viðauka við fjárhagáætlun ársins 2014.
Vöru- og þjónustukaup á bæjarskrifstofum hækki um 1.405.000 kr. sem er fjármagnað með lækkun launaliða á bæjarskrifstofum um kr. 2.675.000. Mismunur kr. 1.270.000 kemur til hækkunar á handbæru fé.
Viðaukinn er samþykktur samhljóða
Tilboð í skjalamál að fjárhæð 1.615.680 kr. og viðauki í tengslum við það sem þarf að samþykkja.$line$Viðaukinn er eftirfarandi:$line$Vöru og þjónustukaup á bæjarskrifstofum hækkar um 1.405.000 kr. sem fjármagnað lækkun launaliða á bæjarskrifstofum um kr. 2.675.000. Mismunur kr. 1.270.000 kemur til hækkunar á handbæru fé.