Málsnúmer 1402104
Bæjarráð Grindavíkur - 1343. fundur - 3.4.2014 00:00:00
Bæjarstjórn fól bæjarráði á fundi sínum þann 17. desember að meta hvort stofna skuli sérstakan sjóð um fjármunina sem fást úr sölunni á hlutafénu í HS veitum.
Tillaga fulltrúa D-lista.
Ég legg til að söluandvirðið sem fékkst við sölu á hlut Grindvíkurbæjar í HS Veitum að upphæð kr 46.488.000 að frádregnum fjármangstekjuskatti verði lagt í sjóð, er varið verði til uppbyggingar í þágu eldri borgara í Grindavík. Þetta fjármagn getur verið upphafið að t.d. stækkun á félagasaðstöðu eða frekari uppbyggingu leiguíbúða.
Fulltrúi D- lista.
Tillögunni er hafnað með þremur atkvæðum.
Fulltrúar B-, G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúar B-, G- og S-lista telja ekki rétt að stofna sjóð um lögbundin verkefni bæjarfélagsins enda ber bæjarfélagið ákveðnar skyldur gagnvart málefnum eldri borgara. Á bæjarstjórnarfundi 29. janúar var samþykkt að skipa nefnd um búsetumál eldri borgara og vonir standa til að úr þeirri nefnd komi tillögur er bæjarfulltrúar geta sameinast um að framfylgja.