Málsnúmer 1402035
Bæjarráð Grindavíkur - 1343. fundur - 3.4.2014 00:00:00
Bréf Félags grunnskólakennara lagt fram þar sem farið er fram á að áheyrnarfulltrúar úr hópi kennara fái greidd nefndarlaun á fundum fræðslunefndar. Félagið telur að á grundvelli 1. málsliðar 51. gr. sveitarstjórnarlaga eigi þeir að fá greitt þar sem þeir séu í raun kjörnir fulltrúar.
Bæjarráð vekur athygli á að samkvæmt 51. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er sveitarfélögum heimilt, en ekki skylt að greiða áheyrnarfulltrúum nefndarlaun. Kjörnir fulltrúar eru þeir sem kjörnir eru í nefndir af bæjarstjórn, í samræmi við Samþykkt um stjórn og fundarsköp Grindavíkurbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að við vinnslu fjárhagsáætlunar ársins 2015 verði tekin ákvörðun um hvort greidd verði nefndarlaun fyrir áheyrnarfulltrúa á því ári.