Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1402027

Bæjarstjórn Grindavíkur - 438. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.

Til máls tóku: Bryndís, Páll Jóhann, Guðmundur, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs svaraði fyrirspurnum.

Erindi frá IceAq ehf. kt.500412-0540. Í erindinu er óskað eftir framkvæmdaleyfi fyrir tilraunaborunum á fyrsta áfanga iðnaðarsvæðis i5. Erindinu fylgir umsókn og uppdrættir af svæðinu og nýtingarleyfi Orkustofnunar dagsett 28. janúar 2014 til nýtingar á 2.000 l/s á sjóblönduðu vatni á svæðinu.
Tilgangur borananna er að afla upplýsinga til mats á framtíðar vatnsnýtingu á svæðinu. Deiliskipulag af svæðinu hefur verið sent til Skipulagsstofnunar með ósk Grindavíkur um leyfi til staðfestingar í b-deild Stjórnartíðinda.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að framkvæmdaleyfi verði veitt með fyrirvara um að deiliskipulag fiskeldis á fyrsta áfanga i5 í aðalskipulagi Grindavíkur verði staðfest með auglýsingu í b-deild Stjórnartíðinda.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og umhverfisnefndar.