Málsnúmer 1401028
Bæjarstjórn Grindavíkur - 437. fundur - undefined
Til máls tóku: Bryndís, Marta, Kristín María, Dagbjartur, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Hilmar og Guðmundur.
Vísað er til umsagnar Skipulagsstofnunar, dags. í janúar 2014, þar sem óskað er umsagnar Grindavíkurbæjar um frummatsskýrslu fyrir rannsóknarboranir HS Orku í Eldvörpum. Frummatsskýrslan var kynnt á opnum fundi í Kvikunni þann 16. janúar síðastliðinn.
Tillaga að umsögn er lögð fram þar sem ekki eru gerðar efnislegar athugasemdir við matsskýrsluna, en Grindavíkurbær setur fram áhersluatriði sín og skilyrði fyrir framkvæmdunum. Helstu áhersluatriði og skilyrði eru eftirfarandi:
Leyfilegt er við virkjun háhita í Eldvörpum að staðsetja vinnsluholur innan hverfisverndarsvæðisins skv. samkomulagi við Grindavíkurbæ. Þær staðsetningar rannsóknarhola sem kynntar eru í frummatsskýrslu voru t.a.m. ákveðnar í samráði við fulltrúa bæjarins.
Halda skal mannvirkjum í lágmarki og fella þau að landi eins og kostur er.
Nota skal núverandi vegslóða og staðsetja borholur og lagnir meðfram þeim. Ef lagning nýrra slóða reynist nauðsynleg skal umfangi þeirra haldið í lágmarki.
Við allar framkvæmdir innan hverfisverndarsvæðisins skal hafa það að leiðarljósi að forðast rask á hraunum eins og mögulegt er, vanda frágang og ganga vel um svæðið.
Óheimilt er með öllu að hrófla við gígunum sjálfum.
Grindavíkurbær leggur áherslu á að umfang borhola verði eins lítið og mögulegt er og að gengið verði eins langt og mögulegt er í því að ganga frá borplönum sem ekki teljist nýtileg áfram eftir að rannsóknarborunum lýkur.
Grindavíkurbær styður þá ákvörðun að fallið sé frá borplani B og þannig tekið tillit til niðurstaðna matsvinnunnar.
Í töflu 22.1 er teknar saman mótvægisaðgerðir vegna framkvæmdarinnar. Grindavíkurbær mun setja þessar aðgerðir sem skilyrði við útgáfu framkvæmdaleyfis, auk annarra atriði sem fram kunna að koma í áliti Skipulagsstofnunar. Jafnframt áskilur sveitarfélagið sér rétt til að setja ítarlegari skilyrði í samræmi við ofangreindar athugasemdir, gildandi skipulag fyrir svæðið og auðlindastefnu sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn samþykkir umsögnina, með áorðnum breytingum, og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að ganga frá umsögninni og senda til Skipulagsstofnunar.
Tillögur að svörum koma inn á mánudaginn.