Málsnúmer 1401011
Bæjarráð Grindavíkur - 1341. fundur - 2.4.2014 00:00:00
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fylgdi eftir minnisblaði leikskólafulltrúa um fyrirkomulag dagforeldraþjónustu.
Félagsmálanefnd leggur til að heimilaðar verði niðurgreiðslur til foreldra barna með lögheimili í Grindavík sem kaupa þjónustu dagforeldra í öðrum sveitarfélögum. Það er mat nefndarinnar að slík tilvik verði fátíð og komi ekki til nema aðstæður foreldra krefjist þess. Útgjaldauki mun rúmast innan þeirra fjárheimilda sem nú þegar eru ákveðnar í niðurgreiðslu til dagforeldra.
Bæjarráð samþykkir tillöguna.
Nefndin leggur jafnframt til að gerðir verði þjónustusamningar við dagforeldra í Grindavík þar sem kveðið verði á um ábyrgð og skyldur dagforeldra annarsvegar og Grindavíkurbæjar hinsvegar, þjónustustig, stuðning Grindavíkurbæjar við þjónustuna og önnur þau atriði sem máli skipta.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur leikskólafulltrúa að gera tillögu að þjónustusamningi og leggja fyrir bæjarráð.
Minnisblað leikskólafulltrúa lagt fram.