Málsnúmer 1311069
Bæjarráð Grindavíkur - 1336. fundur - 12.3.2013 00:00:00
Sviðsstjóri fjármála-og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að breytingu á starfslýsingu upplýsinga- og þróunarfulltrúa. Breytingin felur í sér að aukin áhersla verður á skjalavörslu. Samhliða muni starfsheiti breytast í upplýsinga- og skjalafulltrúa.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra að auglýsa starfið laust til umsóknar.
Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D- lista telur að nú ætti bæjarráð frekar velta því fyrir sér að ráða starfsmann í hlutastarf til að sjá um uppýsingaflæði til bæjarbúa.
Fulltrúar B-, G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Samkvæmt lögum ber sveitarfélögum að tryggja að skjalastjórnun sé fullnægjandi og að gögnum sé skilað til Þjóðskjalasafns. Nýleg dæmi sýna að skjalastjórnun er ábótavant hjá Grindavíkurbæ. Mikil ánægja er með heimasíðu Grindavíkurbæjar, Járngerði og Þórkötlu, fréttablað starfsmanna bæjarins. Heimasíðan hefur náð þeim árangri að þær tilkynningar og fréttir sem þar birtast ná til flestra bæjarbúa og mikilvægt er að tryggja slíkt upplýsingaflæði áfram og takmarka ekki aðgengi íbúa að upplýsingum. Með því að gera starf upplýsingafulltrúa að hlutastarfi skapast hætta á afturför í upplýsingaflæði til íbúa ásamt því að skjalastjórnun verður áfram í ólestri í bæjarfélaginu.