Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1311054

Bæjarstjórn Grindavíkur - 435. fundur - undefined


Erindi frá HS orku hf. Í erindinu er óskað eftir breytingu á deiliskipulagi við Svartsengi. Breytingin felur í sér að afmarkaður verði 182 m2 byggingarreitur fyrir dælistöð vestan við kæla fyrir Orkuver 4 og að umrædd dælistöð verði bætt inn í lista yfir dælustöðvar í greinargerð.

Til máls tóku: Bryndís og Guðmundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi við Svartsengi skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn telur að falla eigi frá grenndarkynningu vegna þess hve svæðið er afskekkt. Bæjarstjórn leggur til að tillagan verði auglýst í b-deild Stjórnartíðinda og send Skipulagsstofnun til varðveislu.


Skipulags- og umhverfisnefnd fjallar um erindið á fundi sínum fyrir bæjarstjórnarfundinn