Málsnúmer 1311052
Bæjarstjórn Grindavíkur - 435. fundur - undefined
Ályktun bæjarráðs Garðs um málefni Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja lögð fram, en bæjarstjórn Reykjanesbæjar ályktaði um sama efni 12. nóvember.
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar tekur undir áhyggjur bæjarráðs Sveitarfélagsins Garðs og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar af framlögum til heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum. Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar leggur áherslu á að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er hornsteinn heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum og því er réttlætismál að stofnunin fái sambærileg framlög og aðrar heilbrigðisstofnanir um landið.
Bæjarstjórn Grindavíkur