Málsnúmer 1311025
Bæjarstjórn Grindavíkur - 435. fundur - undefined
Erindi frá Hafnarfjarðarbæ. Í erindinu kemur fram að um þessar mundir fer fram heildarendurskoðun Aðalskipulags Hafnarfjarðar 2005-2025. Ekki fer fram endurskoðun á Aðalskipulagi Krýsuvíkur.
Til máls tók: Bryndís
Bókun
Bæjarstjórn Grindavíkur gerir ekki athugasemd við endurskoðunina en áréttar að sé stefnt að nýju vatnsbóli í Fagradal sem er í lögsagnarumdæmi Grindavíkurbæjar skal það unnið í samráði við Grindavíkurbæ. Jafnframt bendir bæjarstjórn á að lögsögumörk milli sveitarfélaganna eru óviss.
Skipulags- og umhverfisnefnd fjallar um erindið á fundi sínum fyrir bæjarstjórnarfundinn