Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1311023

Bæjarráð Grindavíkur - 1335. fundur - undefined


Ályktanir frá fundi Félags eldri borgara á Suðurnesjum haldinn 31. október 2013 lagðar fram.

Bæjarráð Grindavíkurbæjar tekur undir ályktun stjórnar Félags eldri borgara á Suðurnesjum um að sveitarfélög á Suðurnesjum þurfi að standa saman um að næg hjúkrunarrými séu til á svæðinu. Grindavíkurbær vinnur að metnaðarfullum breytingum á búsetu- og heimaþjónustu í Grindavík og hefur átt í viðræðum við velferðarráðuneytið um mögulega yfirtöku á rekstri hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð og heimahjúkrunar í Grindavík. Bæjarráð vekur athygli á því að rekstur hjúkrunarheimila er að ábyrgð ríkisins.