Málsnúmer 1311017
Bæjarráð Grindavíkur - 1356. fundur - undefined
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs tók þátt í afgreiðslu málsins.
Tilboð í verkið Göngustígur Bláa Lónið-Gíghæð, jarðvinna voru opnuð 14. júlí. Eitt tilboð barst, sem var 85% af kostnaðaráætlun eða kr. 19.358.500 kr.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að ganga til samninga við lægstbjóðanda GG Sig ehf.