Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1310044

Bæjarstjórn Grindavíkur - 434. fundur - undefined


Til máls tóku: Bryndís, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Guðmundur, Marta, Kristín María, Dagbjartur og Unnar

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og gerði hann grein fyrir skipulagslýsingunni og þeim kröfum sem þar koma fram.

Skipulagslýsing fyrir 2. hluta iðnaðarsvæðisins i5 á aðalskipulagi Grindavíkur 2010-2030 er lögð fyrir bæjarstjórn, unnin af Eflu verkfræðistofu, dagsett október 2013. Skipulagslýsingin er undanfari deiliskipulagstillögu fyrir gróðurhús og aðra aðstöðu fyrir tómatarækt.
Deiliskipulagið mun taka til 27 ha reits innan iðnaðarsvæðis i5. Áformað er að reisa um 15 ha gróðurhús sem ætlað er undir tómataræktun til útflutnings, þjónustubyggingu og aðstöðu.

Bæjarstjórn samþykkir skipulagslýsinguna til kynningar skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða