Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1310028

Bæjarstjórn Grindavíkur - 434. fundur - undefined


Til máls tók: Bryndís, Kristín María, bæjarstjóri, Dagbjartur

Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.

Erindi frá Ágústi Gíslasyni f.h. Víkurbrautar ehf., kt. 480293-2159. Í erindinu er óskað eftir byggingarleyfi fyrir endurbótum á húsnæði við Víkurbraut 58, Grindavík fnr. 209-2566 og breyttri notkun í 35-36 herbergja gistiheimili. Einnig er óskað eftir því að fyrirhuguð framkvæmd falli undir ákvæði til bráðabirgða byggingarreglugerðar nr.112/2012. Erindinu fylgja teikningar dagsettar 1. október 2013 unnar af T.ark Teiknistofan ehf.

Bæjarstjórn hafnar ósk um notkunar á bráðabirgðaákvæðis byggingarreglugerðar nr. 112/2012 þar sem notkun ákvæðisins féll úr gildi 15. apríl 2013 sbr. nýjustu útgáfu reglugerðarinnar frá því maí 2013. Hins vegar samþykkir bæjarstjórn byggingaráformin með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn skv. byggingarreglugerð nr. 112/2012. Bæjarstjórn samþykkir að breytt skráning fari fram að lokinni öryggisúttekt skv. 3.8.2. gr. sömu reglugerðar.
Samþykkt með 6 atkvæðum, Guðmundur situr hjá