Málsnúmer 1309090
Frístunda- og menningarnefnd - 25. fundur - 10.2.2013 00:00:00
Fjárhagsáætlun frístunda- og menningarsviðs fyrir árið 2014.
Undir þessum lið komu á fundinn Margrét R. Gísladóttir forstöðumaður Bókasafns Grindavíkur og Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja. Lagðar voru fram tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun annars vegar fyrir bókasafnið og hins vegar fyrir íþróttamannvirki og tillögur að breytingu á gjaldskrám fyrir árið 2014.
Er varðar rekstur íþróttamannvirkja: Forstöðumaður leggur til 4 - 5% hækkun á gjaldskrám. Óskað er eftir að bætt verði við tveimur stöðugildum í lok árs 2014 þegar áfangi 2 við Íþróttamiðstöð Grindavíkur verður tekin í gagnið.
Nefndin samþykkir tillögur forstöðumanns að gjaldskrárhækkunum og leggur til við bæjarráð að það verði samþykkt. Er varðar beiðni um fjölgun stöðugilda þá samþykkir nefndin að bætt verði við einu stöðugildi til að uppfylla kröfur reglna um öryggi á sundstöðum. Lagt er til að afgreiðslu á beiðni um hitt stöðugildið verið skoðað í tengslum við fjárhagsáætlun ársins 2015.
Er varðar rekstur bókasafns: Lagt er til að árgjald verði fellt niður og örlítil hækkun á öðrum liðum gjaldskrár. Lögð er til hækkun á stöðugildum núverandi starfsmanna í tengslum við sameiningu bókasafnanna í ágúst 2014 þannig að við safnið verði tvö stöðugildi frá 1. júní.
Nefndin leggur til við bæjarráð að árgjald verði 1.400 kr. en aldur þeirra sem fá fríkort verði hækkaður í 18 ár. Nefndin telur ekki tímabært að hækka stöðugildi starfsmanna.
Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs lagði fram fjárhagsáætlun fyrir Félagsmiðstöðina Þrumuna, starfsemi Vinnuskóla Grindavíkur og aðra liði er heyra undir frístunda- og menningarsvið.
Er lýtur að rekstri vinnuskólans er lagt til að laun nemenda verði sem hér segir:
17 ára: 1.213 kr. með orlofi.
16 ára: 740 kr. með orlofi.
15 ára: 592 kr. með orlofi.
14 ára: 518 kr. með orlofi.
Lögð er til fjölgun á vinnustundum hjá 14 og 15 ára unglingum. 14 ára fái 109 klst. í stað 67 klst. 15 ára ungmenni fái 162 klst. í stað 117. 16 ára fái 222 klst. sem er tveimur tímum færra en í sumar og 17 ára fái 239 klst. sem er 11 stundum færra en í sumar. Þessar tillögur gera ekki ráð fyrir heildarhækkun á launalið Vinnuskólans og leggur nefndin til að þessar tillögur verði samþykktar.
Lögð er til 3 - 5% hækkun á gjaldskrá leikjanámskeiða. Heill dagur á leikjanámskeiði verði 10.500 kr. og hálfur dagur 6.800 kr. Jafnframt er lagt til að aftur verði boðið upp á leiklistarnámskeið sem hluta af frístundaframboði sumarið 2014 líkt og gert var í sumar og heppnaðist vel.
Nefndin samþykkir tillögur um fyrirkomulag vinnuskólans þ.m.t. laun og tímafjölda. Jafnframt eru samþykktar tillögur um hækkun gjaldskrár á leikjanámskeiðum og leggur nefndin til við bæjarráð að þær verði samþykktar.