Málsnúmer 1309085
Bæjarstjórn Grindavíkur - 434. fundur - undefined
Til máls tók: Bryndís
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.
Erindi dagsett 28. ágúst 2013 þar sem Gísli Ágúst Guðmundsson, kt. 250860-7499, fyrir hönd Vísis hf. sækir um byggingarleyfi fyrir 409 m2 viðbyggingu við Hafnargötu 16, lnr.128683. skv. teikningum frá GÁG ehf., dags. 28. ágúst 2013.
Bæjarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn og að þeir sem hagsmuna eiga að gæta hafa lýst skriflega yfir samþykki með áritun sinni á kynningargögn sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir stjórn Kvikunnar og hafnarstjórn.
Samþykkt samhljóða