Málsnúmer 1309079
Bæjarráð Grindavíkur - 1334. fundur - 11.9.2013 00:00:00
Skólastjóri Tónlistarskóla Grindavíkur óskar eftir því að stöðugildi sem var fellt út árið 2011 verði endurvakið og óskar auk þess heimildar til aukinnar stjórnunar í tengslum við breytingar á skipulagi náms.
Bæjarráð telur rétt að hefja rekstur í nýrri aðstöðu og samkvæmt nýju skipulagi með sama stöðugildafjölda og meta að loknu einu starfsári hvort þörf er fyrir aukningu. Bæjarráð getur því ekki orðið við erindinu.