Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1309076

Bæjarráð Grindavíkur - 1338. fundur - 1.7.2014 00:00:00


Dómur félagsdóms nr. 10/2013, Alþýðusamband Íslands gegn Grindavíkurbæ lagður fram.

Málið fór fyrir félagsdóm þar sem Starfsgreinasamband Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga voru ósammála um túlkun kjarasamnings. Báðum aðilum þótti mikilvægt að fá málið fyrir félagsdóm til að ljóst væri hvernig ætti að túlka kjarasamninginn áður en kjarasamningsviðræður hæfust á nýju ári.

Niðurstaðan var að túlkun Starfsgreinasambands Íslands var metin rétt og mun Grindavíkurbær greiða málskostnað ásamt launum í veikindaleyfi í samræmi við dómsniðurstöðu. Málskostnaður er áætlaður 1 milljón kr.

Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D ? lista er mjög undrandi á því að málið hafi ekki verið tekið fyrir í bæjarráði til umræðu, áður en því var vísað til Félagsdóms.