Málsnúmer 1309071
Bæjarráð Grindavíkur - 1329. fundur - 10.1.2013 00:00:00
Allsherjar- og menntamálanefnd óskar eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um leikskóla að loknu fæðingarorlofi, 37. mál.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar styður það að innanríkisráðherra skipi nefnd með þátttöku sveitarfélaganna sem geri tillögu að áætlun um hvernig sveitarfélögin standi að því að bjóða leikskólaúrræði strax og fæðingarorlofi lýkur.
Bæjarráð telur hinsvegar ljóst að sveitarfélögin muni ekki hafa bolmagn til að bjóða upp á slíka þjónustu að óbreyttum tekjustofnum sveitarfélaga.