Málsnúmer 1309070
Bæjarstjórn Grindavíkur - 435. fundur - undefined
Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu og fræðslusviðs kom til fundar og gerði grein fyrir tillögum um breytingar á skipulagi í heima- og búsetuþjónustu fullorðinna.
Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Marta, Kristín María, bæjarstjóri, Páll Jóhann, Hilmar og sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Tillaga
Lagt er til að starfsemi Miðgarðs, Túngötu og almennrar liðveislu gagnvart fullorðnum verði sameinuð í eina deild með einn stjórnanda sem heyri undir sviðsstjóra félagsþjónustu- og fræðslusviðs. Félagsmálanefnd verði fagnefnd starfseminnar.
Lagt er til að þær fjárheimildir sem hingað til hafa verið til ráðstöfunar fyrir Miðgarð, Túngötu og almenna liðveislu fullorðinna verði nýrri deild til ráðstöfunnar, auk þess að á árinu 2014 verði veitt aukaframlag til deildarinnar til að standa undir aukinni þjónustu og kostnaði við breytingar.
Lagt er til að þjónusta fyrir fullorðna sem þarfnast aðstoðar verði aukin, m.a. með því að ,,frekari liðveisla“ fyrir fullorðna með fötlun verði efld. Að boðið verði upp á fleiri þjónustuþætti félagslegrar heimaþjónustu, svo sem innlit, aðstoð við aðdrætti og heimsendan mat.
Lagt er til að öllum starfsmönnum Miðgarðs og Túngötu sem svo kjósa haldi störfum sínum. Starfi forstöðukonu Miðgarðs verði breytt, þannig að starfsmaðurinn verði stjórnandi nýrrar deildar. Ráðinn verði fagaðili í málefnum fatlaðra, að undangenginni auglýsingu, í starf verkefnastjóra sem verði staðgengill forstöðukonu.
Jafnframt er lagt til að Grindavíkurbær beiti sér fyrir áframhaldandi viðræðum við velferðarráðuneytið um að Grindavíkurbær taki að sér rekstur hjúkrunarheimilsins í Víðihlíð auk heimahjúkrunar í Grindavík.
Tillagan er samþykkt samhljóða