Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1309069

Bæjarráð Grindavíkur - 1335. fundur - undefined


Forseti fór yfir viðtöl bæjarráðs og ráðgjafa Intellecta ráðgjafar við fimm umsækjendur um starfið.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að bjóða Þorsteini Gunnarssyni starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar.

Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Fulltrúi D-lista óskar Þorsteini Gunnarssyni til hamingju með að vera boðið starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs. Meirihlutinn hefði getað sparað sér kostnaðinn við ráðningarferlið.

Fulltrúar B, G og S lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Á bæjarráðsfundi nr. 1328 var samþykkt að auglýsa starf sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs og gerði fulltrúi D-lista engar athugasemdir við þá ákvörðun. 31 sótti um starfið og voru 14 teknið í viðtöl hjá Intellecta. Í framhaldinu mættu fimm umsækjendur í viðtal til bæjarráðs en þeir voru allir valdir af Intellecta. Viðtalstími var ákveðinn í samráði við fulltrúa D-lista sem átti kost á því að sitja viðtölin, en fulltrúi D-lista komst ekki . Eftir viðtölin mat starfsmaður Intellecta tvo umsækjendur jafn hæfa og var annar þeirra Þorsteinn Gunnarsson.

Í starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar sem samþykkt var 13. mars 2002 með síðari breytingum stendur eftirfarandi: "Starfsmönnum Grindavíkurbæjar skal veittur forgangur að lausum störfum hjá bænum, enda standi viðkomandi jafnfætis utanaðkomandi umsækjendum hvað varðar hæfni bæði faglega og persónulega" og "Sérhver starfsmaður á að eiga þess kost að þroskast í starfi sínu innan þess ramma sem bærinn hefur til ráðstöfunar. Þetta á sérstaklega við um mat á óskum starfsmanna um tilflutning milli starfa og við ráðningar í nýjar stöður". Það var því niðurstaða bæjarráðs að bjóða Þorsteini Gunnarssyni starfið.

Fulltrúar B-, G- og S-lista harma að reynt sé að gera ráðningu Þorsteins Gunnarssonar tortryggilega og óska honum velfarnaðar í nýju starfi.

Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Undirritaður fulltrúi D-lista var erlendis þegar viðtöl fóru fram og varabæjarfulltrúi D-lista var upptekinn á vegum Alþingis þess daga.
Guðmundur Pálsson.


Tillaga um ráðningu