Málsnúmer 1308047
Bæjarráð Grindavíkur - 1326. fundur - 9.3.2013 00:00:00
Bæjarráð Grindavíkurbæjar þakkar Sveitarfélaginu Garði og Sandgerðisbæ fyrir vel unna og athyglisverða skýrslu um heilbrigðis- og öldrunarmál á Suðurnesjum. Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi og draga enn og aftur fram hvað framlög ríkisins til opinberrar þjónustu á Suðurnesjum eru mikið lægri en tíðkast í öðrum landshlutum.
Í skýrslunni kemur fram að framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árunum 2000-2010 voru langlægst til Suðurnesja.
Áberandi er hve misjafnt hjúkrunarrými skiptast á milli landshluta og er erfitt að átta sig á eftir hvaða reglu er farið við úthlutanir á hjúkrunarrýmum. Ef fjöldi hjúkrunarrýma á hverja 1.000 íbúa í hverju heilbrigðisumdæmi er skoðaður hallar verulega á Suðurnesin.
Nú er unnið að nauðsynlegri fjölgun hjúkrunarrýma á svæðinu og er Grindavíkurbær í viðræðum við velferðarráðuneytið um yfirtöku á rekstri hjúkrunarheimilins Víðihlíðar og heimahjúkrun. Sveitarfélagið Garður og Sandgerðisbær hafa jafnframt óskað eftir því að hjúkrunarheimilið Garðvangur verði rekið áfram með færri rými en áður.
Í ljósi þess að stefna félags- og tryggingamálaráðuneytisins er sú að tryggja öldruðum sem þess þurfa aðgang að hjúkrunarheimili í sinni heimabyggð, hlýtur það að vera réttmæt krafa að grunnur daggjalda hjúkrunarheimila verði endurskoðaður þannig að minni hjúkrunarheimili fái hærra daggjald en þau stærri.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar hvetur til samstöðu meðal sveitarstjórnarmanna um að berjast fyrir bættum hlut Suðurnesjamanna í þessum málaflokki.