Málsnúmer 1308045
Bæjarráð Grindavíkur - 1326. fundur - 9.3.2013 00:00:00
Tillaga bæjarstjórnar Reykjanesbæjar lögð fram um að frá og með næstu áramótum verði hætt að innheimta gjöld af einstaklingum sem koma með úrgang á gámaplön Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.
Með vísan til svokallaðrar mengunarbótareglu (enska:Polluter pays principle) telur bæjarráð Grindavíkurbæjar ekki óeðlilegt að þeir sem losa gjaldskylt sorp greiði fyrir þá þjónustu á gámaplönum Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Ef rekstur sorpeyðingarstöðvarinnar hefur svigrúm til lækkunar gjalda telur bæjarráð eðlilegt að sorpeyðingargjöld séu lækkuð almennt á íbúa á Suðurnesjum.