Málsnúmer 1307023
Bæjarstjórn Grindavíkur - 445. fundur - undefined
Ármann Halldórsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fór yfir lista yfir eignir með útrunnið byggingaleyfi, framkvæmdir þar sem framkvæmdir hafa stöðvast í lengri tíma eða húsnæði hefur verið tekið í notkun án lokaúttektar. Jafnframt kynnti hann drög að bréfum og næstu skref.
Aðrir sem til máls tóku: Kristín María, Guðmundur og Jóna Rut.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að sviðsstjóra verði falið að hefja verkferlið og senda út bréf á viðkomandi aðila.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu nefndarinnar.
Etirfarandi eignir eru með útrunnið byggingarleyfi, framkvæmdir stöðvast í lengri tíma eða húsnæði tekið í notkun án lokaúttektar Efrahóp 8, 21, 29, 30 og 31. Norðurhóp 13, 15 og 17 Austurhóp 5, 7, 13 og 27.$line$Sviðsstjóri kynnir drög af bréfum og næstu skref