Málsnúmer 1307019
Bæjarráð Grindavíkur - 1323. fundur - undefined
Skýrsla greiningardeildar Arion banka frá júní 2013 Sveitarfélögin 2013 er lögð fram.
Í skýrslunni er að finna samanburð á fjárhagslegum upplýsingum um 28 fjölmennustu sveitarfélög landsins. Í skýrslunni kemur fram að fjárhagsleg staða Grindavíkurbæjar er mjög góð, sérstaklega eigna og skuldastaða. Greiningardeild Arion banka metur Grindavíkurbæ með sterkasta fjárhagslega stöðu þeirra 28 fjölmennustu á Íslandi.
Skýrsla greiningardeildar Arion banka, júní 2013