Málsnúmer 1307009
Bæjarráð Grindavíkur - 1324. fundur - undefined
Sigmar Árnason, byggingafulltrúi, sat fundinn undir þessum lið.
HS Orka hf. tilkynnir um væntanlegar framkvæmdir á bortteig við Sýrfell á grundvelli framkvæmdaleyfis frá Grindavíkurbæ sem gefið var út árið 2004.
Bæjarráð samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir HS Orku hf. við norðurenda Sýrfells en í þeim felst stækkun borplans, lagningu borvatnsveitu, lagningu rafstrengs í skurði, forborun og háhitaborun.
Bæjarráð leggur til að HS Orka hf. sæki um ný framkvæmdaleyfi vegna frekari framkvæmda þar sem deiliskipulag svæðisins tók ekki gildi fyrr en 2011 þar sem það fékk ekki staðfestingu í B-deild Stjórnartíðinda á sínum tíma.
Framkvæmdaleyfi er frá 2004 og álitamál hvort það gildi ennþá.