Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1306094

Bæjarráð Grindavíkur - 1323. fundur - undefined


Listi yfir tómar íbúðir í Grindavík lagður fram. Mikill meirihluti eignanna er í eigu íbúðalánasjóðs og Landsbankans.

Grindavíkurbæ berast reglulega athugasemdir og ábendingar um ástanda auðra húsa og íbúða. Jafnframt berast fyrirspurnir um eigendur slíkra eigna með fyrirspurnum um möguleika á kaupum eða leigu.

Mikil eftirspurn eftir leiguhúsnæði í Grindavík enda hefur íbúum fjölgað um rúmlega 1% frá síðustu áramótum, eða um 32 einstaklinga. Bæjarráð vill því hvetja eigendur auðra íbúða og húsa til að koma íbúðum sínum í íbúðarhæft ástand og bjóða þær til leigu eða sölu ef ekki stendur til að eigandi búi þar sjálfur.

Bæjarráð felur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að senda bréf á eigendur eignanna.


Listi yfir tómar íbúðir í Grindavík lagður fram. Ræða í tengslum við mikla eftirspurn eftir leiguhúsnæði. $line$Fela byggingafulltrúa að senda eigendum tómra íbúða bréf og hvetja þá til að sinna eðlilegu viðhaldi húsa sinna. Merkja hús sem eru í eigu fjármálastofnanna?