Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1306006

Frístunda- og menningarnefnd - 22. fundur - 6.5.2013 00:00:00


Farið yfir niðurstöður kannanna Rannsóknar og Greiningu fyrir árið 2013. Annars vegar er um að ræða könnun á vímuefnanotkun nemenda í 8. - 10. bekk og hins vegar könnun um hagi og líðan nemenda í 5. - 7. bekk. Frístunda- og menningarnefnd fagnar þeim árangri sem er að nást í forvarnarmálum gagnvart vímuefnaneyslu nemenda en hvetur foreldra og forráðamenn til að halda vöku sinni í þessum efnum og styðja vel við bakið á ungmennum sínum í þá veru að koma í veg fyrir eða seinka neyslu eins og hægt er.
Nefndin hvetur skólayfirvöld til að fara yfir niðurstöður úr könnuninni um hagi og líðan nemenda.