Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1305051

Bæjarráð Grindavíkur - 1340. fundur - undefined


Dómur Héraðsdóms Reykjaness í máli E-743/2013 Gísli Þorláksson gegn Grindavíkurbæ lagður fram.

Grindavíkurbær er dæmdur til að greiða stefnanda 1.100.000 krónur með dráttarvöxtum, sem er það sem Grindavíkurbær bauð sem sáttaboð í málinu vorið 2013, en var hafnað af stefnanda.

Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Þetta er þriðja dómsmálið á stuttum tíma þar sem bænum er gert að borga bætur, til starfsfólks bæjarins.

Fulltrúi D- lista.

Fulltrúar B-, G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Öll þrjú dómsmálin eru mjög ólík og tilviljun að niðurstaða þeirra kemur á sama tíma. Dómsmál varðandi eineltismál var ólíkt öðrum er höfðu fallið hér á landi og þótti því mikilvægt að fá niðurstöðu um hver sé ábyrgð vinnuveitanda í slíkum málum. Málið sem fór fyrir félagsdóm snérist um mismunandi túlkun Starfsgreinasambandsins og ríkis og sveitarfélaga. Þar var framkvæmd sem hafði tíðkast hjá sveitarfélögum og ráðuneytum gagnrýnd og þótti öllum aðilum mikilvægt að fá niðurstöðu félagsdóms áður en kjarasamningsviðræður hæfust. Í þessu máli var Grindavíkurbær dæmdur til að greiða sömu upphæð og stefnanda hafði verið boðið. Er því ekkert óeðlilegt við þessi þrjú dómsmál, en mjög óeðlilegt er að Grindavíkurbær fari í þá átt að greiða meira en því ber eingöngu til að forðast dómsmál.

Fulltrúar B-, G- og S-lista.


Dómur Héraðsdóms Reykjaness lagður fram.