Málsnúmer 1305045
Bæjarráð Grindavíkur - 1335. fundur - undefined
Bréf frá velferðarráðuneytinu lagt fram, þar sem frekari viðræðum um að Grindvíkurbær taki að sér að sjá um heimahjúkrun í Grindavík er frestað til fyrsta ársfjórðungs næsta árs.
Bæjarráð harmar að ráðuneytið vilji fresta viðræðunum og lýsir sig reiðubúið til að taka viðræðurnar upp á nýju ári.