Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1305039

Bæjarráð Grindavíkur - 1321. fundur - 6.11.2013 00:00:00


Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs fór yfir kynning Ingu Þórðardóttur, skólastjóra Tónlistarskólans í Grindavík á framtíðarsýn skólans eins og hún var kynnt í fræðslunefnd.

Bæjarráð lýsir yfir ánægju með þá framtíðarsýn sem skólastjóri leggur fram.

Fræðslunefnd leggur til að samþykkt verði viðbótarstöðugildi kennara sem nemur 50% frá og með 1. ágúst nk. og 50% stöðugildi kennara frá og með 1. ágúst 2014. Aukin heldur að skólastjóra verði heimilt að deila þeirri viðbótarstjórnun sem fyrir er þ.e. 30% á þrjá aðila í stað tveggja frá 1. ágúst nk.

Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu frá og með 1. ágúst næstkomandi, en vísar tillögunni til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2014.


Kynning skólastjóra sem lögð var fyrir fræðslunefnd