Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1305033

Bæjarráð Grindavíkur - 1336. fundur - 12.3.2013 00:00:00


Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins og lagði fram tillögu að samkomulagi við Þurrkaðar fiskafurðir ehf.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til viðræðna á grundvelli tillögunnar og leggja endanlegt samkomulag fyrir bæjarráð til samþykktar.

Fulltrúi D-lista leggur fram eftirfarandi bókun.
Meirihlutinn er hér að samþykkja tillögu að samningi, þar sem bærinn ætlar að útbúa á sinn kostnað plan undir skreiðarhjalla. Og án þess að vita hver kostnaðurinn við það er.
Fulltrúi D- lista er ekki andvígur að viðkomandi aðili fái að setja upp skreiðarhjalla á sinn kostnað.
Fulltrúi D- lista gerir athugasemd við að samningur þessi sé bundinn a.m.k til 10 ára. Það þýðir að bærinn geti ekki úthlutað þessu svæði til frekari atvinnuuppbyggingar fyrr en eftir þessi 10 ár.

Fulltrúar B-,G- og S-lista leggja fram eftirfarandi bókun.
Grófleg kostnaðaráætlun liggur fyrir ásamt því að umrætt iðnaðarsvæði er 100 ha og er nú verið að úthluta 0,7 ha. Ætti því að vera nægt svæði á umræddum iðnaðarreit ásamt því að Grindavíkurbær hefur yfir að ráða fleiri iðnaðarsvæðum. Er því mjög ólíklegt að bæjarfélagið verði uppiskroppa með iðnaðarsvæði á næstu 10-15 árum.