Velkomin á nýja heimasíðu! -
Við erum enn að vinna í efni og fínstillingum og biðjum notendur um þolinmæði ef eitthvað er ekki alveg eins og það á að vera. Ný heimasíða Grindavíkurbæjar komin í loftið
Beint í efni

Málsnúmer 1305030

Bæjarstjórn Grindavíkur - 434. fundur - undefined


Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið og gerði hann grein fyrir vettvangsferðinni, 9. október sl.

Aðrir sem til máls tóku: Bryndís, Guðmundur, Kristín María, Marta, bæjarstjóri og Páll Jóhann

Skipulagslýsing, unnin af verkfræðistofnunni Eflu dagsett 29.4.2013, fyrir nýtt skotsvæði skotfélagsins Markmið vestan við Lágfell tekin fyrir að nýju eftir auglýsingu.

Umsögn Skipulagsstofnunar liggur fyrir og gerir stofnunin ekki athugasemd við tillöguna. Þrjár athugasemdir komu á auglýsingatíma. Ein frá Bláa Lóninu ehf. og tvær frá einstaklingum.
Í athugasemdum er fyrirhuguðu skotsvæði mótmælt m.a. vegna mögulegs hávaða við fyrirhugað hótel Bláa Lónsins, göngustíga í nágrenni Lágafells, s.s. Reykjaveg og Skipastíg og einnig við fyrirhugaða skógrækt við Lágafell og Þorbjörn.

Í framhaldi af síðasta fundi bæjarstjórnar var farin vettfangsferð þann 9. október sl. Skotið var sjö sinnum úr haglabyssu með 24.gr. leirdúfuskotum og sjö skotum úr riffli með 270 cal. skotum. Skotið var við bestu aðstæður til hljóðburðs. Ljóst er að á u.þ.b. 400 m kafla á Reykjaveg heyrist vel hljóð úr riffli með stórum skotum.
Einnig þarf að færa til Skipastíginn á kafla.

Tillaga
Bæjarstjórn hafnar því að farið verði í deiliskipulagsgerð vestan við Lágafell og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að leggja fyrir skipulags- og umhverfisnefnd tillögur að öðrum staðsetningum að skotsvæði.
Samþykkt samhljóða


Tekið fyrir með afbrigðum